Kanryo Higaonna, 1853-1916
Kanryo Higaonna
Kanryo Higaonna fæddist í borginni Naha á Okinawa þann 10. mars 1853. Faðir hans verslaði með matvöru og klæðnað í Ryukyu eyjaklasanum. Higaonna byrjaði 10 ára að vinna með föður sínum vegna þess að elsti bróðir hans var veikur og tveir aðrir eldri bræður höfðu látist úr sjúkdómum.
14 ára gamall hóf Kanryo Higaonna að æfa kínverskt Kempo undir leiðsögn Seisho Aragaki sem hafði lært bardagalistir í Fukien héraði í Kína. Hann var fljótur að ná tökum á kínversku Kempo en þráði að ferðast til Kína til þess læra meira.
Á þessum árum fengu aðeins kaupmenn, námsmenn og opinberir starfsmenn að ferðast til Kína. Aragaki, kennari Higaonna kynnti hann fyrir Udon Yoshimura og með aðstoð hans fékk Higaonna leyfi til þess að ferðast til Kína sem námsmaður. Higaonna var 16 ára þegar hann ferðaðist til Fuchow héraðs í Kína og settist að í Ryukyu Kan, þar sem námsmenn frá Okinawa bjuggu.
Það leið næstum því eitt ár áður en Higaonna var kynntur fyrir þekktum kínverskum bardagalistamanni, Ryu Ryu Ko (Xio Zongxiang).
Ryu Ryu Ko vann við að vefa bambuskörfur og hafði verslun á jarðhæðinni í húsi sínu en bjó á efri hæðinni. Hann kenndi aðeins fáum útvöldum nemendum bardaglistir í húsnæði sínu. Eins og siður var á þessum árum fékk Higaonna ekki að æfa strax en varð að framkvæma ýmis verk fyrir Ryu Ryu Ko til þess verða nemandi, m.a. að þrífa herbergi og vinna í garðinum. Að lokum var Higaonna samþykktur sem nemandi.
Á daginn vann Higaonna við að vefa bambuskörfur og hjálpa Ryu Ryu Ko í verslun hans og á kvöldin æfði hann bardagalistir. Í fyrstu æfði Higaonna aðeins Sanchin kata. Hann æfði einnig með hinum hefðbundnu æfingatækjum eins og chi ishi, ishi sashi, nigiri game, tan og muning (kínversk útgáfa af makiwara).
Ryu Ryu Ko var þekktur bardagalistamaður í Kína. Hann lærði bardagalistir í Shaolin musterinu í fjöllum Fujian héraðs. Ryu Ryu Ko kenndi Higaonna einnig bardaga með vopnum og grasalækningar. Higaonna æfði bardagalistir í Kína í 14 ár og 1881 snéri hann aftur til Okinawa.
Higaonna settist að í Naha borg og hóf verslun eins og faðir hans. Árið 1905 byrjaði hann að kenna við gagnfræðaskóla í Naha og kenndi nokkrum útvöldum nemendum bardagalistir á heimili sínu og einn þessara nemenda var Chojun Miyagi.
Higaonna gerði breytingar á Sanchin kata en fram að þessum tíma hafði Sanchin kata verið æfð með opnum höndum. Hann hægði einnig á önduninni og voru þessar breytingar gerðar til þess að Sanchin kata hefði meira heilsusamlegt gildi en dregið var úr bardagagildi.
Smám saman fór bardagalist Higaonna að verða þekkt sem Naha-te ( Naha-hönd). Fyrri hluta árs 1916 varð Higaonna veikur og lést í október sama ár. Við andlát Higaonna, tók nemandi hans Chojun Miyagi við sem aðalkennari Naha-te,